Upphitunarganga laugardaginn 7. júní
sksiglo.is | Almennt | 03.06.2014 | 15:15 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 368 | Athugasemdir ( )
Gestur og Hulda ætla að fara í svokallaða upphitunargöngu fyrir sumarið.
Farið verður laugardaginn 7. júní og mæting er klukkan 10:00 við skíðaskálann í Skarðsdal. Áætlað er að ganga
út Siglufjarðarfjöllin og koma niður í Hvanneyrarskál.
Þar sem meirihluti leiðarinnar er genginn á snjó þarf að vera vel útbúinn til fóta, með legghlífar og góðan skóbúnað og gott er líka að vera með göngustafi.
Nauðsynlegur búnaður:
Sólarvörn og sólgleraugu ef það verður sól.
Smá nesti í bakpokann er æskilegt og svo þarf að hafa í huga að gott er að hafa með sér skel eða annað sem gott er að fara í ef fer að blása.
Áætlaður göngutími er 4-5 klukkustundir og gangan er ókeypis.

Gestur og Hulda benda þeim sem ætla að taka
þátt í fjallgöngunni á síðuna mfbm.is sem
er síða fyrir styrktarfélagið " Meðan fæturnir bera mig" Safnað er áheitum fyrir langveik og/eða fötluð
börn.
Farið er inn á síðuna www.mfbm.is/, smellt á flipann "skráning" þá kemur upp "skráning í víðavangshlaup
á Siglufirði" .
Vonandi taka sem flestir þátt, bæði í víðavangshlaupinu og
í fjallgöngunni og styrkja þetta góða málefni.
Athugasemdir