Veglegur vinningur og fjöldi heimsókna

Veglegur vinningur og fjöldi heimsókna Þegar vafrað er um fésbókarsíðu Sigló Hótel rekst maður á spennandi leik sem hefur vægast sagt fangað mikla athygli

Fréttir

Veglegur vinningur og fjöldi heimsókna

Skjáskot af félsbókarvef Sigló Hótel
Skjáskot af félsbókarvef Sigló Hótel

Þegar vafrað er um fésbókarsíðu Sigló Hótel rekst maður á spennandi leik sem hefur vægast sagt fangað mikla athygli hjá lesendum síðunnar en yfir 200.000 manns hafa skoðað leikinn. 

Í dag hafa rétt um 5.000 manns tekið þátt í leiknum sem haldinn er í tilefni þess að veitingastaðurinn Sunna opnar nú formlega aftur í dag föstudaginn 14. ágúst eftir brunann í síðasta mánuði. 

"Húrra Húrra" segir í upphafi á síðu Sigló Hótels.

"Í tilefni þess að veitingastaðurinn okkar opnar fljótlega á ný ætlum við hjá Sigló Hótel að gefa heppnum einstakling gistingu og kvöldverð fyrir tvo. Settu „like“ á Sigló Hótel hér á facebook, segðu okkur hverjum þú myndir bjóða með þér og vinningurinn gæti orðið þinn! Endilega deilið svo vinir ykkar geti tekið þátt í gleðinni!
Dregið verður út þriðjudaginn 18. ágúst".

Leikinn má skoða betur á fésbók Sigló Hótel www.facebook.com/siglohotel 


Athugasemdir

22.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst