Veglegur vinningur og fjöldi heimsókna
Þegar vafrað er um fésbókarsíðu Sigló Hótel rekst maður á spennandi leik sem hefur vægast sagt fangað mikla athygli hjá lesendum síðunnar en yfir 200.000 manns hafa skoðað leikinn.
Í dag hafa rétt um 5.000 manns tekið þátt í leiknum sem haldinn er í tilefni þess að veitingastaðurinn Sunna opnar nú formlega aftur í dag föstudaginn 14. ágúst eftir brunann í síðasta mánuði.
"Húrra Húrra" segir í upphafi á síðu Sigló Hótels.
"Í tilefni þess að veitingastaðurinn okkar opnar fljótlega á ný ætlum við hjá Sigló Hótel að gefa heppnum einstakling gistingu og kvöldverð fyrir tvo. Settu „like“ á Sigló Hótel hér á facebook, segðu okkur hverjum þú myndir bjóða með þér og vinningurinn gæti orðið þinn! Endilega deilið svo vinir ykkar geti tekið þátt í gleðinni!
Dregið verður út þriðjudaginn 18. ágúst".
Leikinn má skoða betur á fésbók Sigló Hótel www.facebook.com/siglohotel
Athugasemdir