Blakað á Dalvík
toti7.123.is/# | Rebel | 20.03.2011 | 05:52 | Robert | Lestrar 688 | Athugasemdir ( )
Héðinsfjarðargöngin hafa breytt miklu hér á Siglufirði nú þegar og í
sumar held ég að við sjáum í raun hversu miklu þau breyta fyrir okkur
því ég hef trú á að hér verði algjör sprenging í ferðamennskunni.
Íþróttalífið fer ekki varhluta af opnun ganganna, hér hafa að undanförnu
verið haldin tvö stór íþróttamót þar sem leikið hefur verið í
íþróttahúsunum í báðum byggðarkjörnum,Íslandsmót yngri flokka í badminton og öldungamót í blaki, og tókust
bæði eins og best verður á kosið. Síðasta miðvikudag renndi hópur
siglfirskra blakara inn á Dalvík og lék gegn heimamönnum og þeir munu
heimsækja okkur fljótlega. Göngin hafa auðveldað lífið fyrir okkur
íþróttafólkið til mikilla muna, fjölgað kostum, lækkað ferðakostnað og
gert okkur kleift að rækta betur sambönd við vini okkar í Eyjafirðinum.
Athugasemdir