Draumórar og hugarfóstur í tvö ár
Það er hinsvegar staðreynd að varla líður sá dagur að blogg eða bloggarar séu ekki meðal þess sem rætt er meðal fólks eða fjallað um í fjölmiðlum. Bloggið er sérkennilegur fjölmiðill sem á sinn sess meðal annarra netmiðla og stækkar ört að vinsældum enda sjarmerandi sambland af einkaveröld og opinberum vettvangi. Moggabloggið átti 3ja ára afmæli fyrir stuttu. Það kom mér satt að segja á óvart að ekki eldri sé, svo "rótgróinn" sem þessi vettvangur er orðinn í fjölmiðlaflórunni.
Tilgangur fólks með bloggskrifum er mjög mismunandi, allt frá þjóðmála - og dægurmálaskrifum til dagbókarforms um ýmis hugðarefni. Bloggið nota sumir til að “liðka pennann” og þjálfast í að setja frá sér ritað mál á skipulegan og vel læsilegan hátt.
Eins og margir fleiri hef ég birt bæði draumóra og ýmis hugarfóstur á bloggsíðunni. Hef tjáð mig um ýmis málefni, bæði þau sem ég hef nokkurt vit á, líka þau sem ég hef ekki nokkurt vit á.
Margt
hefur brunnið á almenningi að tjá sig um síðustu misserin, enn frekar
nú en endranær. Til þess er bloggið einmitt frábær vettvangur. Enginn
ÞARF að lesa nema það sem honum þykir áhugavert og þess vegna gef ég
lítið fyrir gagnrýni þeirra sem vilja meina að á blogginu séu
einskisverð skrif. Pistlar á þessum vettvangi eru oft áhugaverðir en
auðvitað er oft verið að birta hér e-ð sem engum gagnast öðrum en þeim
sem skrifar. Það er þá lesandans að velja og hafna eins og með allt
annað misgott framboð efnis í fjölmiðlum. Flestir
bloggarar hafa þó meiri ánægju af gagnvirkum samskiptum en
drottningarpistlum enda hefur úrvalið af þeim verið yfrið nóg á ýmsum
öðrum vettvangi.
Athugasemdir