Ekki þjóðin, ekki lýðræði, bara ofbeldi
http://lara.blog.is/blog/lara/ | Rebel | 31.12.2008 | 15:22 | Robert | Lestrar 215 | Athugasemdir ( )
Ofbeldishneigt fólk fékk í dag útrás með því að eyðileggja eignir Stöðvar 2 og Hótel Borgar. Í fjárhagskreppu
sér fólk af þessu tagi ekki annað ákjósanlegra en að auka á vanda samfélagsins með skemmdarverkum. Einnig hindruðu þeir
lýðræðislega umræðu og þá von okkar hinna að fá upplýsingar um hvað er á döfinni og hvernig verður unnið eftir
þau uppgjör sem fara fram hjá a.m.k. tveimur stjórnmálaflokkum í janúar.
Minna má á að margir hafa reynt að leysa þjóðfélagsvanda með ofbeldi víða um heim. Það hefur ekki virkað. Friðsamleg mótmæli hafa hinsvegar skilað árangri.
Þessi mótmæli nú eiga ekkert skylt við friðsamleg mótmæli undanfarið og ég frábið mér að grímuklæddir ofbeldismenn kenni sig við íslenska þjóð. Þeir eru einungis ofbeldishneigðir einstaklingar. Punktur og basta.
Athugasemdir