Fundað vegna Listgöngunnar
toti7.123.is/# | Rebel | 04.11.2009 | 00:10 | Robert | Lestrar 351 | Athugasemdir ( )
Í gær var undirbúningsfundur fyrir Listgöngu Ferðafélags Siglufjarðar sem verður haldin í þriðja sinn þann 10. des. nk. Í þessari göngu lítur göngufólk inn til listamanna bæjarins, á vinnustofur þeirra eða sýningaraðstöðu, og skoðar hvað það er að fást við og sumir versla sér jólagjafir í leiðinni. Á flestum stöðum er boðið upp á léttar veitingar, kaffi, konfekt, kakó, jólaglögg o.fl. og rennur það ljúft niður. Fyrsta árið tóku um 40 manns þátt í göngunni en í fyrra rúmlega 90. Litið var inn á 8 stöðum í fyrra og kemur það mörgum á óvart hversu fjölskrúðugt listalífið er hér á Siglufirði, meira að segja bæjarbúum sjálfum.Í ár verða þátttakendur úr röðum listamanna enn fleiri en áður og það kæmi mér ekki á óvart þó þátttakendur í göngunni yrðu um 100 talsins, a.m.k. ef við verðum heppin með veður. Ég mun syngja og spila eigin lög og jafnvel fara með ljóð á einum áfangastaðanna. Frábært framtak Ferðafélagsins sem vakið hefur mikla athygli og fólk úr nágrannabyggðum er byrjað að sækja.
Athugasemdir