Leshringur, bókaspjallið er hafið
Mark Haddon hefur skrifað töluvert fyrir sjónvarp og meðal annars unnið til tvennra BAFTA verðlauna. Hann fæddist í Northampton í Englandi árið 1962 og lauk prófi í enskum bókmenntum frá Merton College í Oxford og Edinborgarháskóla. Að námi loknu starfaði hann um skeið á stofnunum fyrir andlega og líkamlega fatlaða, einkum börn. Um leið var hann að skapa sér nafn sem myndskreytir en hann hefur teiknað skopmyndir og teiknimyndasögur fyrir blöð á borð við New Statesman, Private Eye, Sunday Telegraph og Guardian, en þar var hann meðhöfundur að teiknimyndasögunni Men – A User´s Guide.
Fyrsta barnabók Marks Haddons, Gilbert´s Gobstopper, kom út árið 1987 en barnabækur sem hann hefur skrifað og/eða myndskreytt eru orðnar fjölmargar. Fyrsta bók hans fyrir eldri lesendur var Furðulegt háttalag hunds um nótt (The Curious Incident of the Dog in the Night-time).
Furðulegt háttarlag hunds um nótt fjallar um
Kristófer Boone sem er fimmtán ára einhverfur drengur. Hann er góður í stærðfræði og aðdáandi Sherlock Holmes en á erfitt með að skilja annað fólk og ýmislegt sem það gerir. Þegar hann rekst á hund nágranna síns rekinn í gegn með garðkvísl ákveður hann að finna morðingja hans og skrifa leynilögreglusögu um leitina. En verkefnið vindur upp á sig og á endanum afhjúpar Kristófer allt aðra og miklu stærri gátu en hann ætlaði sér. Kristín R. Thorlacius þýddi. |
Athugasemdir