Minningarsteinn í Ólafsfirði
http://bjoval.hexia.net/ | Rebel | 03.01.2009 | 14:08 | Robert | Lestrar 486 | Athugasemdir ( )
Í kirkjugarðinum í Ólafsfirði er fallegur
steinn þar sem fólk getur minnst ættingja og vina sem hvíla annarsstaðar en í kirkjugarðinum. Allan ársins hring, nánast á hverjum degi
loga kerti við steininn til minningar um þá sem látnir eru. Ég og mín fjölskylda erum ein af ein af þeim fjölmörgu sem höfum
notfært okkur þennan möguleika allt frá því steininum var þarna fyrir komið og þannig verið auðveldara fyrir okkur að halda minningu
ástvina okkar á lofti. Ef ég man rétt þá var það að frumkvæði félagsskapar um sorg og sorgarviðbrögð í
Ólafsfirði sem steinninn var settur í kirkjugarðinn og líklega kom
sóknarpresturinn á þeim tíma
Sigríður Guðmarsdóttir einnig þar við sögu. Það væri hinsvegar gaman að fá upplýsingar um þetta mál, hvenær
steinninn var settur þarna niður, hverjir stóðu að því og fleira ef eitthvað er. Sömuleiðis væri gaman að vita hvort fleiri slíka
steina sé að finna í kirkjugörðum landsins. Hér á Akureyri er ekki jafn góð aðstaða og í Ólafsfirði að þessu
leiti en það ætti að vera auðvelt að bæta úr því ef vilji er til þess.
Athugasemdir