Og göturnar glitra...

Og göturnar glitra... Það er lítið jólalegt við það þegar blautar göturnar taka að glitra eins og oft hefur borið á síðustu dagana, a.m.k. hér suðvestan

Fréttir

Og göturnar glitra...

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Það er lítið jólalegt við það þegar blautar göturnar taka að glitra eins og oft hefur borið á síðustu dagana, a.m.k. hér suðvestan lands.  Mikil hálka hefur myndast á götunum, jafnvel þó svo að hiti í lofti sé 3 til 5°C. Sem sagt ekki frost. 

Þegar léttir til og vind lægir kólnar yfirborðið snögglega, jafnvel þó enn sé bjart af degi, en sólin gefur heldur lítinn varma á þessum árstíma. Hálka af þessari tegund, þ.e. þegar blautur vegurinn frýs er sérlega varasöm, ekki síst fyrir þær sagir að hún myndast oft á blettum eða stöðum sem kólna hraðar og fyrr en annars er. Ég hef kallað hana glerhálku eða glærahálku, en á ensku nefnist hún black ice.

Á laugardag var hitinn kl. 15 í Reykjavík +5°C.  Engu að síður tóku göturnar að glitra þegar létti til.  Vindur er oftast mældur í 10 metra hæð.  Þegar hann er orðinn minni en 3-4 m/s í þeirri hæð má fara að gera ráð fyrir lítilli loftblöndun niðri við jörð. Staðalhæð hitamælinga er í 2m hæð, en miklu getur munað á hitastigi niðri við jörð eins þegar skilyrði er hagstæð fyrir myndun hitahvarfa samfara örri kælingu yfirborðsins. 

Í morgun voru göturnar enn og aftur blautar eftir smá rigningu í nótt, síðan létti til og lægði.  Þá var ekki að sökum að spyrja og betra að fara varlega.  Hálkuvarnir m.a. af hálfu Vegagerðarinnar og líka sveitarfélaganna miðast mikið að því að eyða hálku sem myndast á þennan hátt og jafnvel að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða, þ.e. að salta í þann mund sem nær að frysta.

mynd10 725374 940390.jpg


Athugasemdir

09.janúar 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst