Rafrænt einelti
bjoval.hexia.net/faces/blog/list.do?face=bjoval | Rebel | 11.02.2009 | 20:00 | Stefna ehf | Lestrar 336 | Athugasemdir ( )
Það
var átakanlegt að hlusta á lýsingar hinnar 16 ára gömlu Kristínar
Júlíusardóttur á einelti sem hún varð fyrir á netinu. Kristín sagði frá
reynslu sinni á ráðstefnu sem SAFThelt um rafrænt einelti í gær. Kristín býr við fötlun og varð hennar
vegna fyrir mjög grimmu og miskunnarlausu einelti af hendi skólasystur
sinnar sem hún reyndar taldi vera vinkonu sína en kom fram undir
dulnefni á netinu. Málið var kært til lögreglu á sínum tíma en
”vinkonan” gaf sig fram áður en til þess kom að lögreglan gripi til
sinna ráða. Það kom einnig fram í útvarpsviðtölum í gær vegna
ráðstefnunnar að stelpur virðast vera grimmari og ákafari gerendur
eineltis á netinu en strákar.Strákar
virðast ekki hafa tileinkað sér tæknina eins vel og stelpurnar og eru
því meira í að stríða og meiða þolendur sína með beinum og
milliliðalausum hætti. Stelpur eru sagðar lúmskari í sínum gerðum og
nýta sér netið og símann til eineltis og þá undir nafnleynd. Flestir
þeir sem hafa komið að þessum málum telja að rafrænt einelti hafa
aukist mjög á síðustu árum og muni versna hratt ef ekki verður gripið
til ráðstafana til að stöðva þennan óhugnað. Reyndar er það svo að
fullorðið fólk virðist ekki síður en börn og unglingar nota netið til
eineltis. Það er þá gert undir nafnleynd en þannig samt að ekki er um
að villast á hvern verið er að ráðast. Gerendur nota þá oft nokkur
leyninöfn til að fela sig á bak við og láta svo út líta að fleiri séu
gerendur í málinu. Sjálfur þekki ég dæmi um að fullorðið fjölskyldufólk
hefur dreift óhróðri og ósannindum um saklaust fólk í því einum
tilgangi virðist vera að láta öðrum líða illa. Það er hinsvegar mjög
erfitt koma í veg fyrir þetta og upplýsa um gerendur sem virðast mjög
vel verndaðir í netheimum. Það er þó oftast nær vel hægt en kostar
mikla fyrirhöfn. Best er þó samt að forðast þekktar kjafta- og
eineltissíður eins og heitan eldinn og reyna ekki að svara fyrir sig á
þeim vettvangi. Það ber sjaldnast árangur og getur gert málin verri en
ella. Það getur verið auðvelt fyrir fullorðið fólk að gera slíkt en
þegar um börn og unglinga er að ræða er málið erfiðara. Þar verðum við
fullorðnu að koma að málunum beita öllum tiltækum ráðum til að koma í
veg fyrir þennan óhugnað.
Athugasemdir