Fjallatoppar
sksiglo.is | Rebel | 07.04.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 856 | Athugasemdir ( )
Sunnudaginn 30. mars var blíðskaparveður á Siglufirði og hreinlega allir úti að njóta veðursins.
Ég notaði seinni part dagsins í vélsleðaferð með Gesti Hanssyni.
Gestur var á leið inn í Fljót þar sem hann þurfti að setja inn punkta í GPS tækið sem hann notar svo fyrir nýtt fyrirtæki sem
þau hjónin Gestur og Hulda hafa stofnað.
Fyrirtækið heitir Topmounteneering og er ferðaþjónustufyrirtæki sem
sérhæfir sig í gönguferðum með leiðsögn umhverfis Siglufjörð.
Hér getið þið séð heimasíðu TopMountaineering.is
En við semsagt fórum yfir Siglufjarðarskarð inn í Fljót og Fljótin
skoðuð frá sjónarhorni sem maður hefur aldrei séð. Þaðan var haldið upp á Almenningshnakka, Blekkil, Blekkilsbarn og fleiri og fleiri
staði og að sjálfsögðu voru myndir teknar. Svo voru innstu hólar, hæðir og hryggir í Siglufirði þræddir og Gestur þreyttist ekki
á því að stoppa og segja mér frá örnefnum á því svæði sem við fórum um. Það er óhætt að
segja það að Gestur veit upp á hár hvað hann er að gera þegar kemur að fjallamennsku.
Þegar við fórum úr Fljótunum komum við niður innst í
Hólsdalnum og þaðan fórum við beint yfir í Skútudal.
Alveg hreint magnaður sleðadagur og gaman að fá leiðsögn frá
Gesti. Topp maður hjá Topmountaineering.
Hér eru svo myndir af því sem fyrir augum bar þarna á toppunum. Ég
tek það fram að ég er ekki alveg hundrað prósent viss á öllum örnefnunum þannig að hugsanlega eru einhverjar staðreyndarvillur í
þessu. En þið líklega leiðréttið mig ef þið þekkið betur til.
Þessi mynd er tekin af Almenningshnakka ef mér skjátlast ekki.
Efri Ámárhyrna hér næst okkur.
Þessa ferðamenn hittum við Gestur í Fljótum þegar þeir voru að fara að ganga í átt til Siglufjarðar.
Frá vinstri. Gestur á spjalli við forsprakka hópsins en hópurinn var að koma á Tröllaskaga frá Þýskalandi.
Þessi mynd er tekin innst inn í Hólsdal. Líklega fyrir neðan Draugaklett.
Sauðadalur í Fljótum.
Og Myndband.
Athugasemdir