Söfnun ABC barnahjálpar

Söfnun ABC barnahjálpar Nemendur úr 5. bekk Grunnskóla Siglufjarðar munu nú í febrúar ganga í hús í bænum með merkta söfnunarbauka. Að þessu sinni er

Fréttir

Söfnun ABC barnahjálpar

Nemendur úr 5. bekk Grunnskóla Siglufjarðar munu nú í febrúar ganga í hús í bænum með merkta söfnunarbauka. Að þessu sinni er verið að safna fyrir rekstri skóla sem ABC hjálparstarf starfrækir víða um heim.
Siglfirsk skólabörn hafa nú tekið þátt í að safna peningum til að byggja skóla fyrir bágstödd börn frá upphafi stofnunar íslensku ABC samtakanna.
Að þessu sinni er  þörfin mest á peningum fyrir skólamáltíðum.
Vegna þess að:
•       Gengi íslensku krónunnar hefur lækkað mjög mikið.
•       Tekjur ABC eru í íslenskum krónum en  kaupa þarf dollara til að
senda út og reka skólana og nú höfum við ekki nóg til að kaupa mat fyrir börnin.
•       Við þurfum á ykkur að halda til þess að hjálpa okkur að safna fyrir
mat fyrir skólabörn.
.
Við biðjum bæjarbúa að taka vel á móti börnunum og láta eitthvað af hendi rakna ef þeir eru aflögufærir.

Athugasemdir

21.apríl 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst