Tónleikar - Valdimar
sksiglo.is | Viðburðir | 26.10.2012 | 22:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 356 | Athugasemdir ( )
Hún sló í gegn síðast þegar hún mætti á Sigló og nú, ári síðar, leggur hljómsveitin Valdimar leið sína aftur á Kaffi Rauðku með tónleika sem haldnir verða 26. október klukkan 22:00.
Valdimar Guðmundsson stofnaði hljómsveitina ásamt vini sínum Ásgeiri Aðalsteinssyni árið 2009 sem nú er orðin að 6 manna
hljómsveit. Fyrsta plata hljómsveitarinnar, Undraland, kom út árið 2010. Platan fékk góðar viðtökur og nutu lögin Yfirgefinn,
Brotlentur og Undraland mikilla vinsælda í útvarpi. Fyrir plötuna hlaut sveitin tilnefningu sem bjartasta vonin á íslensku tónlistarverðlaununum auk
þess sem hún var valin á úrvalslista Kraums.
Myndirnar hér að neðan voru teknar af Sveini Hjartar á tónleikum Valdimars á Kaffi Rauðku þann 20. Júlí 2011. Myndbandið er hinsvegar tekið upp hjá Loga í mars árið 2011.
Myndirnar hér að neðan voru teknar af Sveini Hjartar á tónleikum Valdimars á Kaffi Rauðku þann 20. Júlí 2011. Myndbandið er hinsvegar tekið upp hjá Loga í mars árið 2011.
Athugasemdir