Á ferð um landið á tveim gömlum Massey Ferguson

Á ferð um landið á tveim gömlum Massey Ferguson Þeir Karl Friðriksson og Grétar Gústavsson sem eru á ferð um landið á tveim gömlum Massey Ferguson

Fréttir

Á ferð um landið á tveim gömlum Massey Ferguson

Karl og Grétar traktorhetjur
Karl og Grétar traktorhetjur

Þeir Karl Friðriksson og Grétar Gústavsson sem eru á ferð um landið á tveim gömlum Massey Ferguson traktorum gistu hér á Siglufirði sl. nótt.

Þeir voru saman í sveit á bænum Valdarási í Húnaþingi frá fimm ára aldri fram á unglingsár og unnu ýmis sveitastörf.

Draumurinn um ferðina kviknaði þegar þeir þeir byrjuðu að vinna í viðgerð á traktornum (árgerð 1963) sem er annar fararskjótinn þeirra í ferðinni

Félagarnir ákváðu að nota tækifærið um leið og þeir létu þennan 50 ára draum rætast og leggja góðu málefni lið.

Þeir safna áheitum í gegnum símanúmerið 904 1900, fyrir 500 krónur, en ágóðinn rennur til Vináttu – forvarnarverkefnis Barnaheilla gegn einelti í leikskólum.

Mynd lánuð frá myndadagbók Björns Valdimarssonar:  http://bjornvald.is/diary-2015/

Mynd og texti: Björn Valdimarsson


Athugasemdir

23.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst