"Siglufjarðarlag" - Ojba Rasta
Hljómsveitin Ojba Rasta sem spilar í Ólafsfirði í kvöld og í Allanum annað kvöld flytur hér lagið Gjafir jarðar:
http://www.youtube.com/watch?v=4JQagqdr1no
Það er eftir aðalsöngvara hljóimsveitarinnar, Arnljót Sigurðsson, og samdi hann það að hluta til á Siglufirði fyrir tveimur árum.
Það fjallar um þá gleði og frið - og hvíld frá stórborginni - sem hann finnur hér fyrir norðan. Lagið hefur notið
vinsælda og talsvert verið leikið á útvarpsstöðvum.
Arnljótur dvaldi nokkuð á Siglufirði sem drengur og það gerðu einnig systkini hans sem einnig eru í hljómsveitinni: Unnur Malín, Vala, Gylfi
og Þorvaldur.
Arnljótur heldur námskeið fyrir unglinga á Þjóðlagahátíðinni þessa dagana og nefnist það "stokkar og steinar" þar sem
gerðar eru músíktilraunir með alls kyns furðuhljóðfærum sem fundin eru á förnum vegi og búin til.
-ök
Athugasemdir