Jónsmessustrandblakmót
sksiglo.is | Afþreying | 26.06.2013 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 558 | Athugasemdir ( )
Jónsmessustrandblakmót
Jónsmessutrandblaksmót var haldið á föstudagskvöldið
síðasta.
Margir komu og horfðu á blakarana spila af sinni alkunnu snilld og einhverjir
sýndu alveg hreint magnaðar listir með boltann og aðrir sýndu alveg hreint alls engar listir.
Boðið var upp á kakó og kleinur sem var alls ekki nægilega vel
auglýst. Ægir nokkur Eðvarsson sagði gestum og gangandi að kakóið og kleinurnar væru bara fyrir keppendur og enga aðra sem að
sjálfsögðu var haugalýgi. Kakóið og kleinurnar voru bæði fyrir gesti og keppendur. Ég verð nú að viðurkenna það að
ég varð nú töluvert fúll við hann vin minn fyrir að hafa ekki betri upplýsingar um veitingarnar, eins Ólöf mín er alltaf að segja
við mig að það sé í lagi að éta alveg hreint helling og alveg eins og svín svo lengi sem það sé frítt.
En Ægir klikkar örugglega ekki aftur á þessu og ég mun að
sjálfsögðu koma á næsta blakmót til þess að fá mér kakó og kleinur og svo auðvitað til að horfa á
líka.
Helstu niðurstöður úrslita í þessu Strandblaksmóti voru
þær að Gulli Stebbi vann ekki.
Úrslit í karlaflokki 1. sæti voru Karol og David
Úrslit í kvennaflokki 1. sæti Silla Guðbrands og Gilla Salla.
Athugasemdir