Guði sé lof ...!
"Guði sé lof fyrir að beljurnar hafa ekki vængi" - sagði presturinn sem fuglinn skeit á. En allur er varinn góður hefur hann hugsað þessi
þegar hann gekk um varplandið til að fræða son sinn um dásemdir sköpunarverksins. Með regnhlíf til varnar loftárusum á
sólbjörtum degi!
Sr. Sigurður Ægisson er landsþekktur fuglaáhugamaður, höfundur fuglabókar og frábærra ljósmynda sem birtast reglulega í Mogganum
með frásögn hans af hinu óvenjulega og skemmtilega sem borið getur fyrir augu.
Í sókn hans eru þéttbýlustu varplönd við kaupstað sem um getur á landinu - og miðað við fjölda andategunda og annars
fiðurfénaðar þá mætti sannarlega kalla hann einn andríkasta prest norðan heiða!
Texti og mynd: ök
Athugasemdir