Hollenskir skútugarpar

Hollenskir skútugarpar Ég hitti á Gerard Dijkstra sem er hollenskur skútugarpur. Hann og vinafólk hans kom við á Sigló fyrir nokkrum dögum síðan.

Fréttir

Hollenskir skútugarpar

Hollenskir skútugarpar

 
Ég hitti á Gerard Dijkstra sem er hollenskur skútugarpur. Hann og vinafólk hans kom við á Sigló fyrir nokkrum dögum síðan.
 
 Ég gaf mig á tal við kappann og spurði hann að því hvað hann og þau sem voru með honum væru að þvælast alla leið á Siglufjörð. 
 
Hann, kona hans og vinafólk þeirra var að koma frá Hornströnd og voru á leið til Húsavíkur með viðkomu á Siglufjörð og hugsanlega Akureyri (ég náði því nú reyndar ekki alveg).
 
 Eins og mín kunnátta í hlustun á enska tungu talaða af Hollending skildist mér að þau væru búin að sigla um mest allan heiminn. Gerard Dijkstra er skútuhönnuður og þessi skúta er hönnun hans frá grunni skyldist mér.  Hann tók eftir að ég horfði svolítið vel á stefnið af því það var alveg lóðrétt niður, enginn bogi undir kjölinn eins og maður sér vanalega á skútum. Þá sagði hann mér það að ef hönnunin er svona þá verður skútan hraðskreiðari (ég skildi reyndar ekki alveg af hverju en hann reyndi samt að útskýra það svo vel að á endanum sagði ég bara "aaaa æ sííí" og skildi ekki neitt). Þess má einnig geta að skútan er úr áli.
 
 Það var alveg hreint hrikalega gaman að spjalla við þetta fólk um allt á milli himins og jarðar og mjög mikið í sambandi við skútun. Ég hef nefnilega mjög mikinn áhuga á skútum og er reyndar búinn að bjóða henni Ólöfu minni að sleppa því að eiga hús og eiga bara stóra skútu í staðinn með 3 til 4 herbergjum, borstofu, sturtu og alls konar siglingartækjum, snúrustaura þyrfti ekki því hún gæti hengt þvottinn á seglböndin. Við þyrftum til dæmis ekkert klósett, við gætum bara notað fötu . En hún vill ekki heyra á þetta minnst og verður stundum hálf-foj þegar ég minnist á þetta, hún er kannski hrædd um að ég láti verða af þessu einhvern daginn. Skil hreinlega ekkert í þessu hjá henni. Haldi þið að það sé ekki huggulegt fyrir hana Ólöfu mína að þurfa aldrei að slá og hugsa um garðinn til dæmis? Ég vill nefnilega persónulega gera eins og maðurinn á Ísafirði sem malbikaði garðinn sinn, málaði hann grænann og pantaði risastórt plastpálmatré á eBay. 
 
 En jæja, meira af Gerard Dijkstra. Ég spurði hann hvort þeir væru nokkuð á hringferð um landið til þess að ná einhverju af Icesave peningunum aftur en hann bara hló. Ég var ekki viss hvort hann hafi skilið mig en mig grunaði allavega þá að Icesave hafi ekki verið kynnt næstum því nógu vel fyrir honum og þeim sem hann var með á skútunni, hann átti allaveg fyrir skútunni og skútuferðinni þannig að hann hefur mjög líklega ekki verið með sinn sparnað í Icesave krónum. En þetta var ljómandi gott spjall við Gerard Dijkstra og vonandi verður ferðin skemmtileg og góð fyrir þau öll.
 
 
 
 
 
hollandsskuta
 
hollandsskuta
 
hollandsskuta
 
hollandsskuta
 
hollandsskuta
 
hollandsskuta
Hrólfur og Gerard Djikstra
 
hollandsskuta
 
hollandsskuta

Athugasemdir

23.desember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst