Listahópurinn KOK.
sksiglo.is | Afþreying | 12.07.2013 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 518 | Athugasemdir ( )
Hressar stúlkur úr Listahópnum KOK komu við á Sigló á
ferð sinni um landið. Þær fara á milli staða og fá að mála og spreyja myndir á húsveggi og annað sem til fellur.
Fyrst þegar mér var bent á að þær væru að spreyja og
mála á húsveggi, þá hugsaði ég með mér "æi er nú komið eitthvað veggjakrots lið sem er búið að reka
úr höfuðborg Íslands út á land til að krota á veggi"?
En svo ákvað ég nú að kíkja á herlegheitin og viti menn,
þetta var bara alveg þrusu flott hjá þeim. Ekki einhverjar tússpenna krot myndir með einhverjum vafasömum fimmhyrndum stjörnum og duldum skilaboðum
veggjakrotsáhugamanna. Þetta er bara hreint út sagt listaverk að mínu mati.
Að sjálfsögðu fá þær leyfi fyrir því að gera
þetta og þetta kemur vægast sagt mjög skemmtilega út.
Stúlkurnar í Listahópnum KOK heita Aðalheiður, Andrea, Kristín og
Nanna.
Listaverkið sem þær voru að vinna við var eitt sinn í eigu Óskars
Halldórssonar, og ætla ég að kynna mér það hús nánar í framtíðinni. Húsið er nú í eigu Valgeirs
Sigurðssonar.
Listaverkið sem KOK hópurinn er að vinna við er mynd af tveimur
síldveiðimönnum með net og eru þeir með Urð, Verðandi og Skuld í netinu. Mjög flott listaverk hjá stelpunum sem lífgar aðeins upp
á umhverfið þarna í kring. Ég mæli með því að þið kíkjið á listaverkið í næsta göngu
eða hjólatúr.
Og svo miklu meira af myndum hér
Athugasemdir