Litskrúðugt mannlíf á Steinaflötum

Litskrúðugt mannlíf á Steinaflötum Enn einn yndislegur dagur hér á Siglufirði Þar sem heimamenn og gestkomandi nutu veðurblíðunnar á margvíslegan

Fréttir

Litskrúðugt mannlíf á Steinaflötum

Steinaflatir
Steinaflatir

Enn einn yndislegur dagur hér á Siglufirði Þar sem heimamenn og gestkomandi nutu veðurblíðunnar á margvíslegan hátt.

Ein af þeim afþreyingum sem boðið var upp á þennan sólríka sunnudag var útimarkaður að Steinaflötum sem er svona sveit í bæ. Þar var til sölu ýmis varningur og glæsilegt kaffihlaðborð sem svignaði undan heimabökuðum kræsingum og sjóðheitu kaffi.

Margt var um manninn og glatt á hjalla þar sem fólk spjallaði yfir kaffisopa að gömlum og góðum sveitasið.

Þarna ræður ríkjum húsfrúin, Jóna Guðný Jónsdóttir sem hefur verið að gera Steinaflatir upp síðastliðin 15 ár af mikilli smekkvísi.  


Jóna Guðný og Daníel Pétur með litla kút
(ásamt skugga ljósmyndarans)


Birgir Eðvaldsson og Elvar Elefsen í léttu spjalli


Ella kíkir fyrir horn, brosmild að vanda


Hér er gestum heilsað með handabandi


Að sjálfsögðu var fjárfest í merki Síldarævintýrisins 2014
sem Guðmundur Skarphéðinsson er að selja


Sjálfur Hrólfur tók sér pásu frá smíðinni til að koma


Einstaklega fallegt er um að lítast innanhúss þar sem mikil
vinna og tími hefur farið í endurbætur


Jóna Guðný við gamla skrifborðið sem upphaflega var í
Rauðku á síldarárunum


þarna má sjá föt frá horfinni tíð


Borðið svignar undan kaffikræsingum, þarna fann Herdís Sigurjónsdóttir
meira að segja ástarpunga henni til mikillar gleði


Systurnar, Kristín og Herdís Sigurjónsdætur.
Hrólfur gerðist hirðljósmyndari systranna.


Þeir eru örugglega hættulausir þessir hestar, er það ekki?


Spekingar spjalla, þeir Guðmundur Skarphéðinsson og Daníel Baldursson


Meira að segja hrossin brugðu á leik


Vinkonurnar, Herdís Sigurjónsdóttir og Rakel Björnsdóttir

Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir
Texti: Kristín Sigurjónsdóttir


Athugasemdir

25.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst