Skrímslaleit Sigga Ægis
Skrímslaleit Sigga Ægis
Jeremy Wade fær Sigga Ægis til að hjálpa sér við að veiða
skrímsli.
Jeremy Wade heitir maður sem er búinn að þvælast um heiminn síðustu 30
árin til þess aðallega að reyna að veiða furðuskepnur sem sagnir herma að lifi í vatni eða sjó. Það er búið að gera
marga þætti og sjónvarpsseríur með honum og þessu áhugamáli hans.
Ég persónulega hef fylgst aðeins með honum síðustu árin og
þættirnir hans er mjög skemmtilegir og fræðandi og hafa bæði verð sýndir á Animal Planet og Discovery Channel sem Sjónvarp Símans
hefur verið að sýna.
Og þegar maður kemur til Íslands til þess að ná svona furðuskepnum hvað er
þá betra en að hafa með sér eitt stykki prest? Og sá prestur er enginn annar en séra Sigurður Ægisson. Hann er nefnilega ekki bara
guðfræðingur að mennt heldur einnig þjóðfræðingur og ritaði bókina Íslenskar kynjaskepnur sem kom fyrst út 2008 og önnur
prentun 2011. Hann var sérstaklega beðinn um að koma suður og vera með í þessu ævintýri, þegar allt var tekið upp í fyrrasumar. Gaman
að segja frá því svona í leiðinni að bókin var tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis. Einnig skrifaði hann bók um hvali við
Ísland, sem gefin var út árið 1997 á íslensku, ensku og þýsku, og svo aðra árið 2008, sem út kom á íslensku og
ensku; sú var um hvali í öllu Norður-Atlantshafi.
Eftir því sem ég kemst næst á að sýna þennan
skrímslaþátt með Sigga Ægis miðvikudagskvöldið 5. júní sem er akkúrat í kvöld, og á Discovery Channel. Mig
dauðlangar allavega að sjá þennan skrímslaþátt með Sigga Ægis og ætla að reyna eftir fremsta megni að missa alls ekki af
honum.
Hvaða skrímsli sem er væri nú alveg drulluhrætt við þennan prest.
Athugasemdir