Vel sóttur fundur um ferðaþjónustu

Vel sóttur fundur um ferðaþjónustu Opinn fundur um ferðaþjónustu í boði Arion banka var vel sóttur á Siglufirði í dag. Á milli 40-50 manns víðs vegar

Fréttir

Vel sóttur fundur um ferðaþjónustu

Opinn fundur um ferðaþjónustu í boði Arion banka var vel sóttur á Siglufirði í dag.

Á milli 40-50 manns víðs vegar að úr atvinnulífinu mættu á Hótel Sigló til að fræðast um vöxt ferðaþjónustu, um stafræna markaðssetningu og helstu tól og tæki til markaðssetningar á netinu. 

Á fundinum fór Konráð S. Guðjónsson frá Greiningardeild Arion banka yfir stöðu ferðaþjónustu á Íslandi og svo tók Stefán Jökull Stefánsson til máls og fór yfir markaðssetningu í víðu samhengi. 

Að sögn Oddgeirs Reynissonar útibústjóra Arion banka á Siglufirði var ákveðið að bjóða hagsmuna aðilum í ferðaþjónustu frítt upp á þessa fræðslu og renna frekari stoðum undir vöxt ferðaþjónustu á Tröllaskaga.

Var augljóst að fundargestum líkaðu þessar upplýsingar vel og var mikið spurt út í markaðssetningu á netinu. Ekki er vafi á að þessar upplýsingar eiga eftir að koma að góðu gagni fyrir Fjallabyggð.

Vel sóttur fundur á Sigló Hótel í boði Arion banka

Texti: Kristín Sigurjónsdóttir
Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir 

 


Athugasemdir

22.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst