Daginn eftir !
Víða flæddi inn í hús á svæðinu og olli meðal annars skemmdum
á nýlögðum gangstéttarkanti við Bátadokkina.
Auk þess sem steypumót sem beið eftir frostlausu veðri til að fylla, fór úr skorðum.
Efsta myndin er af eini af síðustu leyfum síldarævintýrsins, smá bryggjusporður og skúr sem í dag er notaður vegna lítillar útgerðar.
Sagt er að skúrinn hafi verið á nokkurri hreyfingu upp og niður þegar ölduflóðið gekk yfir í fyrrakvöld. Plastbátarnir norðan
við kirfilega bundnir, og rönd á skúrnum sýna hvert flóðið náði.
Ein myndin hér neðar sýnir steypumótið austan Bátadokkarinnar farið úr skorðum, önnur sýnir starfsmenn slökkviliðsins
á Siglufirði vera að dæla sjó undan Hafnarvoginni sem fékk drjúgan hluta af flóðinu er fylla gekk á land.
Þá eru þarna afrit af frétt af RÚV vefnum, viðtal úr Fréttablaðinu við Þórir kr. Þórisson og loks bloggfærsla
Einars Sveinbjörnssonar u flóð og
veður.
Skemmd steypumót | Dælt undan hafnarvoginni | Frétt af http://www.ruv.is/ |
Fréttablaðið | Blog: Einar Sveinbjörnsson |
Enn eru að koma í ljós ýmsar skemmdir af völdum þess sjógangs.
Heimildir:
http://www.ruv.is/,
http://www.frettabladid.is/,
http://esv.blog.is/blog/esv/about/
Athugasemdir