Héðinsfjarðargöng

Héðinsfjarðargöng Í morgun voru göngin frá Héðinsfirði til Ólafsfjarðar orðin 1605 metrar djúp eða 60 m. til viðbótar frá síðasta fimmtudegi. Bergið hefur

Fréttir

Héðinsfjarðargöng

Betra að hafa nokkuð þétt um ermarnar
Betra að hafa nokkuð þétt um ermarnar
Í morgun voru göngin frá Héðinsfirði til Ólafsfjarðar orðin 1605 metrar djúp eða 60 m. til viðbótar frá síðasta fimmtudegi. Bergið hefur verið nokkuð þurrt og gott það sem af er vikunni, en þegar borun hófst í nótt eftir síðustu sprengingu sullaði vatn
út úr hverri holu. Venjulega eru boraðar um 240-250 holur fyrir sprengjuhleðslur, en að þessu sinni ætluðu þeir aðeins að hafa holurnar rúmlega 200 vegna vatnsins.

Langt var komið á þann fjölda er ljósmyndarinn mætti þar um 08:00 í morgun, og hleðslumenn voru að koma sér í regngallann og gera sig klára við vatnsflauminn og hleðslurnar.

Lítil hreyfing var utandyra hjá Háfellsmönnum í Héðinsfirðinum enda hvasst þar og snjókoma, en unnið var á fullu við vegskálann Siglufjarðarmegin.
 Myndir hér



Ólafsfjarðarmegin eru þeir komnir í 4206 metra, 34 m. frá síðasta fimmtudegi. Þeir virðast nú vera á góðu róli í betra bergi og engu vatni síðustu dagana og eru bjartsýnir á framhaldið.

Nú mun aðeins vera um 10 % eftir að bora þar til komið verði endanlega í gegn frá Ólafsfirði til Héðinsfjarðar.

Athugasemdir

19.apríl 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst