Knattspyrnumenn að gera góða hluti

Knattspyrnumenn að gera góða hluti Siglfirðingunum Bjarna Mark Antonssyni, Hermanni Inga Jónssyni og Ólafsfirðingnum Hólmari Skúlasyni hefur hefur verið

Fréttir

Knattspyrnumenn að gera góða hluti

Siglfirðingunum Bjarna Mark Antonssyni, Hermanni Inga Jónssyni og Ólafsfirðingnum Hólmari Skúlasyni hefur hefur verið boðið á landsliðsæfingar hjá undir 17 ára landsliðinu.

Þetta er mikill heiður fyrir strákana og munu æfingarnar fara fram á Laugarvatni um helgina. Með þeim í för er Mark Duffield, þjálfari þeirra og kemur hann til með að stýra æfingum hjá einum landsliðshóp um helgina.

Þetta er einnig mikil viðurkenning á góðu starfi Marks með yngri flokkana. það er greinilega tekið eftir góðum árangri ungra knattspyrnumanna í Fjallabyggð.



Athugasemdir

27.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst