Líf og fjör í bænum

Líf og fjör í bænum Siglufjörður iðaði af lífi á sunnudaginn og streymdi mikill fjöldi fólks til bæjarins. Var jafnvel talað um að þetta væri stærra og

Fréttir

Líf og fjör í bænum

öll bílastæði í bænum upptekin
öll bílastæði í bænum upptekin
Siglufjörður iðaði af lífi á sunnudaginn og streymdi mikill fjöldi fólks til bæjarins.

Var jafnvel talað um að þetta væri stærra og meira að gera en um sjálfa verslunarmannahelgina.

Guðný Sölvadóttir, stöðvarstjóri á bensínstöð Olís á Siglufirði sagði að umferðin hefði verið eins og á Reykjanesbrautinni.
Það er nokkuð ljóst að það verða miklar breytingar í bænum okkar með tilkomu Héðinsfjarðarganga.

Það er ekkert krepputal hjá fólki á Siglufirði og það eru gríðarlega spennandi tímar framundan.

Nokkrar myndir frá sunnudeginum :



Það er ekki amalegt að fá hita í kringum tuttugu gráður í byrjun október.



Konurnar í Gallerý Sigló tóku á móti gestum með bros á vör.



Það var tilvalið að setjast niður og njóta dagsins.



Aðrir tóku aðeins meira á því og eyddu deginum í vinnu, enda veðrið tilvalið fyrir ýmiskonar útivinnu.



Fjöldi mótorhjólafólks nýtti tækifærið og gerði sér ferð í gegnum göngin.



Torgið var glæsilegt að sjá í haustblíðunni.



Athugasemdir

27.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst