Ný og viðbætt
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 03.07.2010 | 21:10 | | Lestrar 414 | Athugasemdir ( )
Fuglamyndir, og Mjöl og Lýsis Saga eru komin í eina sæng. Það er vaxandi áhugi á meðal margra á Siglufirði, fuglaskoðun og fuglaljósmyndun.
Eftir að nýja gangbrautin við hlið Langeyrarveg kom við hlið Langeyrartjarnar þá hefur fólk fylgst vel með hinu fjölbreytta fuglalífi þar, og ekki hvað síst fylgst náið með álftunum og ungum þeirra.
Tilhugalífið í vor
Nú hefur Steingrímur komið fyrir á Fuglasíðu sinni það helsta eftir „veiðiskap“ sinn fyrrihluta ársins, janúar til júníloka.
Þá hefur hann bætt við síðunni Mjöl og Lýsis Saga,
sem hvarf
á „dularfullan“ hátt af netinu, en er nú aðgengileg.
Þar er ýmis fróðleikur um síldarbræðslu,
mjöl
og lýsisvinnslu á Siglufirði allt frá “upphafi,“ það er frásagnir og
upplýsingar fengnar frá Siglufjarðarblöðunum og fleiri gögnum.
Athugasemdir