Nýtt heimilisfang barrtrjáa
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 16.07.2009 | 00:01 | | Lestrar 728 | Athugasemdir ( )
Þeir sem farið hafa um suðurbæinn á Siglufirði hafa væntanlega tekið eftir framkvæmdum við syðsta Háveginn,en þeir „eru þrír“ á Siglufirði, svo undarlegt það má heita og „tvær“ Hverfisgötur einnig.
Við áðurnefndan Háveg er verið að breikka veginn og lagfæra umhverfið.
Þar á meðal hefur þurft að fjarlægja slatta af trjám úr Skólagörðunum sem þarna eru, sem og árgangarnir 1930-1960 (uþb) gróðursettu á barnaskólatíma sínum.
Hluti trjánna sem þarna eru urðu að víkja voru vandlega flutt á annan stað sem þau munu vonandi dafna við og prýða umhverfið. En verið er að undirbúa snyrtingu á uppfyllingunni norðan við Langeyrina og munu trén væntanlega setja góðan svip á svæðið.
Verkið er unnið af starfsmönnum Bás ehf. undir vökulum augum og stjórn Garðyrkju- og umhverfisfulltrúa Fjallabyggðar, Vali Þór Hilmarssyni
Myndin sýnir ný heimkynni trjánna

Athugasemdir