Óvissuferð eldri borgara
Í gærmorgun um klukkan 09:20 fór 40 manna hópur frá
Siglufirði í óvissuferð á vegum Félags
eldri borgara á Siglufirði og í Fljótum
Þarna voru að sjálfsögðu á ferð eingöngu félagar í ofangreindu félagi, unglingar á öllum aldri auk bílstjórans Gísla Jónssyni, frá Suðurleiðum.
Fararstjórar voru Birgir Björnsson og Sverrir Sveinsson.
Haldið var áleiðis í gegn um Strákagöng og haldið áfram á Siglufjarðarvegi,
enginn vissi nema ferðanefndin hvort haldið yrði í suðurátt á vit Lágheiðar,
eða farið til vesturs lengra til Skagafjarðar.
Ekki var stoppað á Hofsós, svo var það spurning þegar að gatnamótunum til
Sauðárkróks kom hvort haldið yrði á vit höfuðstaðar Skagafjarðar, svo var ekki,
heldur haldið áfram.
Aftur vaknaði spurning farþega þegar kom að gatnamótunum að þjóðveg 1 hvort haldið yrð til vesturs, ef til vill á
leið til Blönduóss, eða til Akureyrar.
Akureyrarleiðin var valið. Fyrsti stoppstaður reyndist ver Glerártorg, (sem
margir undruðust) og þar var tilkynnt að staldrað yrði þar við í um hálfan
annan klukkutíma.
Sumir notuð tækifærið og versluðu lítilsháttar, og fengu sér síðan næringu sem hentaði
þar sem þetta var um hádegisbil. Síðan var lagt af stað klukkan 13:00 og haldið inn Eyjafjörðinn,
síðan yfir á veginn norðan við flugbrautina yfir fjörðinn, síðan haldið til
norðurs.
Farþegar fóru að velta fyrir sér hvort farið yrði yfir Vaðlaheiðina og
eitthvað austur, svo reyndist ekki heldur neðri leiðin sem lá til norðurs valin.
Komið var við á stað sem heitir Laufás, þar sem er torfbæjasafn og sitthvað
fleira, sumir fóru til að skoða viðkomandi svæði og fengu sér kaffisopa í
leiðinn, en aðrir létu sér kaffidropann nægja. Þarna var stoppað í um þrjá
stundarfjórðunga og áfram haldið til norðurs alla leið til Grenivíkur, en þar
var Lítið sjóminjasafn að nafni Hlíðarendi skoðað.
Þar á eftir var haldið á
þann stað sem hinn landsþekkti gæðaharðfiskur er framleiddur, það er fyrirtækið
Eyjabitar. Þar var vel tekið á móti ferðalöngum sem notuð tækifærið og keyptu sér drjúgar birgðir af þessum góða
harðfiski sem þarna er framleiddur, enda var vel slegið af verðinu ef miðað er
við verð í svo dæmi sé tekið hjá „lágvöru“ verslunum samborið Úrval Samkaup á
Siglufirði.
Frá Grenivík var farið til baka til Akureyrar, það er stefnt
var á Kjarnaskóg og þar stoppað og
veitinga, léttra og meðalsterkra notið á vegum ferðanefndarinnar.
Frá Kjarnaskógi var aftur haldið á vit hins óvænta, keyrt inn Eyjafjörðinn vestanverðan, talsvert lengra en fyrr um
daginn, síðan þvert yfir til austurhlutans og haldið til norðurs.
Áfangstaðurinn reyndist ver vistlegur staður að nafni Öngulstaðir. Þar var
hópnum tekið með kostum, brosmildum konum, dásamlega góðri súpu, síðan snilldarmatreidd
lambalæri, magn eins og hver gat með góðu móti torgað, og kaffi á eftir ásamt hljómum
frá nikku harmonikkusnillingsins Ninna, eins og allir nefna Sigurjón Steinsson.
Frá Öngulstöðum var svo haldið áleiðs heim til Siglufjarðar og þangað komið
klukkan 21:16
Bestu þakkir til allra sem þátt tóku í þessu vel heppnaða ævintýri,
Bílstjóranum Gísla, fararstjórum og nefndinni sem skipulagði þessa ferð., og
ferðafélögum. - (sk)
Myndir frá ferðinni má sjá HÉRNA ++ Hér á youtube http://www.youtube.com/watch?v=2_rMcvFUcEA&feature=channel
OG myndir á síðunni hans Sveins Þorsteins, sem hann tók í ferðinni.
Athugasemdir