Síldarvinnslan selur eignir sínar á Siglufirði
Í gær handsalaði Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. sölu á öllum eignum Síldarvinnslunnar
á Siglufirði til Róberts Guðfinnssonar athafnamanns þar. Um er að ræða eignir sem áður tilheyrðu SR-mjöli en árið 2003 runnu
Síldarvinnslan og SR-mjöl saman í eitt fyrirtæki sem ber nafn Síldarvinnslunnar.
Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar sagði eftirfarandi um sölu eignanna: „Við hjá Síldarvinnslunni gleðjumst yfir
því að afhenda athafnamanninum og Siglfirðingnum Róberti Guðfinnssyni umræddar eignir. Róbert stendur í umfangsmikilli uppbyggingu á
ferðamannaþjónustu á Siglufirði auk þess að koma að rekstri skíðasvæðisins á staðnum og uppbyggingu golfvallarins svo
eitthvað sé nefnt. Með þessum kaupum stuðlar Róbert enn frekar að uppbyggingu á staðnum. Ég trúi því að þær
hugmyndir sem Róbert hefur um nýtingu eignanna muni koma samfélaginu vel og stuðla að frekari framþróun á Siglufirði og í
Fjallabyggð.
Við bindum vonir við að nýtingarhugmyndir Róberts boði nýtt upphaf fyrir nýtingu eignanna í þágu atvinnu og mannlífs á
Siglufirði.
Kaupverð og kjör eru trúnaðarmál á milli kaupanda og seljanda. Það liggur hins vegar fyrir að verði eignanna er stillt í hóf og
þannig hefur Síldarvinnslan lagt sitt af mörkum til að framtíðarhugmyndir Róberts geti orðið að veruleika samfélaginu á
Siglufirði og í Fjallabyggð til góða.“
Athugasemdir