Vetraræfing á malarvellinum

Vetraræfing á malarvellinum Það hefur sennilega yljað mörgum að sjá knattspyrnumenn æfa á malarvellinum aftur en það var einmitt raunin seinnipartinn í

Fréttir

Vetraræfing á malarvellinum


Það hefur sennilega yljað mörgum að sjá knattspyrnumenn æfa á malarvellinum aftur en það var einmitt raunin seinnipartinn í gær. Meistaraflokkur KS æfði á vellinum og gaman var að heyra hlátrarsköll og sjá íþróttafólk á vellinum aftur.




Nú fer sennilega að styttast í að íbúðarhús rísi á vellinum sem var einn erfiðast heimavöllur að sækja og oft hræddust aðkomulið að mæta því heimamenn voru studdir dyggilega af æstum áhorfendum og stundum kom það fyrir að blessaður dómarinn þurfti fylgd til búningsklefa. Það er dapurleg staðreynd að íþróttavöllurinn hafi verið látinn drabbast niður í það sem hann er í dag.

Myndir frá snjóboltaæfingunni HÉR




Athugasemdir

12.mars 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst