Er fótboltavöllurinn á Hóli að skemmast?
sksiglo.is | Íþróttir | 26.06.2013 | 14:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 1136 | Athugasemdir ( )
Er fótboltavöllurinn á Hóli að skemmast?
Ég tók einn rúnt á hjólinu suður að Hóli.
Þegar ég var búin að leggja hjólinu, dást að því og
hugsa með mér hvað það væri nú rosalega "gott að eiga svona mótorhjól" þá fór ég að virða völlinn sem
eitt sinn var notaður fyrir fótbolta vel fyrir mér.
Ég get ekki séð betur en völlurinn sé stórskemmdur og eiginlega bara
að verða hið ágætasta æfingasvæði fyrir sinubrunaæfingar. Ég veit ekki hvernig það verður fyrir pæjurnar á
Pæjumótinu að spila á þessu?
Ég hafði samband við Róbert Haralds og fékk upplýsingar hjá
honum. Einnigi spurði ég hann út í hvort Pæjumótið yrði
örugglega áfram á Sigló.
Þetta er svarið sem ég fékk frá Robba sem útskýrir margt
í sambandi við völlinn að Hóli og Pæjumótið.
Satt er það að völlurinn á Hóli lítur ekki vel út.
Ástæðurnar eru nokkrar, til að byrja með voraði illa og snjórinn er ný farinn af sumum svæðum og það var klaki undir
snjónum sem veldur því að það koma slæmir blettir (kal) á svæðið. Það varð misskilningur í vor varðandi mokstur
á svæðinu, en það hefði verið gífurlega kostnaðarsamt að moka snjóinn af völlunum. Stutt er síðan hægt var að
hefja vinnu á svæðinu.
Þar sem fótboltasvæðið á Hóli er
varasvæði knattspyrnumanna, þá verður í framtíðinni meira lagt uppúr knattspyrnusvæðinu á Ólafsfirði. Mín
persónulega skoðun er sú að það eigi að byggja upp eitt glæsilegt svæði á Ólafsfirði, frekar en að hafa tvö
miðlungssvæði, það eru einfaldlega ekki til fjármagn til að reka tvö flott svæði. Held að við íbúar Fjallabyggðar
þurfum að fara að átta okkur á því á fleiri sviðum :-) Hins vegar verður svæðinu á Hóli haldið við, þar
verða stundaðar æfingar og að sjálfsögðu fer Pæjumótið fram á Siglufirði. Þó það sé freistandi að
færa mótið yfir á Ólafsfjörð þar sem öll aðstaða er til staðar, þá gæti það skaðað mótið
og við viljum ekki taka áhættu á því. Það er verið að vinna við svæðið á Hóli (gata, sá, vökva
o.fl.) þessa dagana. Flestir, ef ekki allir leikir allra flokka munu fara fram á Ólafsfjarðarvelli, aðalvelli knattspyrnumanna í Fjallabyggð. Við
knattspyrnumenn erum stolt af svæðinu okkar á Ólafsfirði og sjáum fyrir okkur enn frekari uppbyggingu á því svæði, á meðan
Hólssvæðinu verður haldið við svo æfingar og Pæjumótið geti farið þar fram árlega.
Við þökkum Robba kærlega fyrir gott svar.
Athugasemdir