Tennis og badmintonfélag Siglufjarðar

Tennis og badmintonfélag Siglufjarðar Síðasta mót vetrarins Siglufjarðarmótið  kláraðist í síðustu viku.Alls tókur 40 krakkar þátt og stóðu þau sig öll

Fréttir

Tennis og badmintonfélag Siglufjarðar

Þrefaldir Siglufjarðarmeistarar í badminton
Þrefaldir Siglufjarðarmeistarar í badminton
Síðasta mót vetrarins Siglufjarðarmótið  kláraðist í síðustu viku.
Alls tókur 40 krakkar þátt og stóðu þau sig öll mjög vel og var hart barist í mörgum leikjum og unninn sigur með minnsta mun 2 stigum.
Síðan var verðlaunaafhending að loknu móti. Það er venja hjá okkur að veita hvatningarverðlaun fyrir góða ástundun og fengu allir verðlaun fyrir veturinn.
Krakkarnir hafa staðið sig mjög vel á mótum sem við höfum sótt í vetur, og unnið til fjölda verðlauna.  Við sóttum fjögur mót í vetur auk móta hér heima.

Þrefaldir Siglufjarðarmeistarar í badminton urðu.

Steinunn Þóra Aðalsteinsdóttir, U-17 Hilmar Símonarson U-15
og Kristófer Andri Ólafsson U-13
Unnu allar sínar greinar í sínum aldursflokkum.

Þess má geta að það voru 6 krakkar valdir í U-13 ára flokki í æfingabúðir
helgina 18.-19.apríl hjá TBR undir stjórn Árna Hallgrímssonar landsliðsþjálfara. 
Daníela, Rebekka Rut, Kristófer Andri, Baldvin, Guðrún Hulda og Sif.
Alls voru 22 krakkar úr nokkrum félögum sem tóku þátt.

Þá spiluðum við firmakeppnina s.l. þriðjudag, þar sem við drögum saman í lið fullorðnir og unglingar. Við viljum koma á framfæri þakklæti til allra þeirra fyrirtæka sem studdu okkur af myndarbrag eins og oft áður.  Þetta er aðal fjáröflunin í félaginu.
Þessum vetri er lokið, takk fyrir veturinn, sjáumst sem flest í haust.
Ég vil benda ykkur á heimasíðu TBS  123.is/ tbs

María Jóhannsdóttir

Myndir HÉR


Athugasemdir

16.janúar 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst