Grímur Karlsson

Grímur Karlsson Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi ellefu Íslendinga riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á

Fréttir

Grímur Karlsson

Smelltu á myndina til að sjá hana stærri
Smelltu á myndina til að sjá hana stærri
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi ellefu Íslendinga riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær.

Þar á meðal var Grímur Karlsson fv. skipstjóri. 

Grímur er fæddur (f. 30/9/1935) og uppalinn Siglfirðingur, sonur hjónanna Karls Dúasonar (f. 15/04/1900) og Sigríðar Guðmundsdóttur (f. 22/4/1897) en þau bjuggu lengst af í húsinu Hvanneyrahlíð sem staðsett var ofarlega, norðan við Hvanneyrará á Siglufirði.

Sjálft húsið þá mannlaust, lenti fyrir stóru snjóflóði í desember árið 1963 og var rifið í kjölfarið, en húsið hafði verið notað af Síldarleitinni yfir sumartímann um árabil.

Fréttin hér á myndinni fyrir ofan er tekin frá Morgunblaðinu á netinu í gær .

Frásögn af áðurnefndu snjóflóði má lesa HÉR



Athugasemdir

28.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst