Okkar fólk: Í LITLU SÆTU HÚSI
Í litlu sætu frægu húsi í Kvósinni á Hofsós býr Siglfirðingurinn Kristinn Halldórsson (Kiddi Gósa málara) og konan hans Jófríður Hauksdóttir ásamt fullt af barnabörnum. Það er minnst sagt líf og fjör í þessu pínulitla húsi.
Kiddi Gósa er vélstjóri og vann hann lengi á skipum Þormóðs Ramma áður en þau hjónin fluttu suður fyrir mörgum árum síðan.
Faðir hans var Halldór Kristinnson, en hann var ævinlega kallaður Gósi Málari og móðir Kidda er Björg Pálína Jóhannsdóttir (Palla Jó).
Þau eru 4 systkinin og eru að Siglfirskum sið annaðhvort kennd við pabba eða mömmu. Þar er elstur Kiddi Gósa og svo kemur Gummi Gósa, þar á eftir Linda Pöllu og síðastur er Jói Pöllu.
Braut. Litla húsið í Kvosinni, fréttaritari stendur við svalirnar með 8 af 9 íbúum hússins á svölunum. (Mynd Kristín Sigurjónsdóttir)
Kiddi og Jófríður keyptu þennan húshelming sem sumarhús árið 2003 en þetta hús heitir Braut og stendur beint á móti Sólvangi sem var heimili afa og ömmu Jófríðar.
Þau hafa smá saman verið að laga þetta hús og Kiddi vill undirstrika að sú skemmtilega tilviljun að húsið sé svona tvískipt í litum, þeirra helmingur gulur og hinn bleikur botni alls ekki í neinu ósætti við nágrannan, þvert á móti kemur þeim vel saman.
Kiddi segir ennfremur að ástæðan fyrir að hann klæddi sinn helming var að sumir útveggir voru að hruni komnir og það var aldrei rætt að hinn eldir maður sem á þarna sitt lögheimili gerði slíkt hið sama.
Þess vegna hefur þetta litla skrítna hús vakið athygli allra sem koma niður í Kvosina á Hofsós á leið sinni á Vesturfarasafnið, húsið prýðir líka forsíðu á velseldri Ljósmyndabók sem heitir Iceland Small World, sjá mynd hér fyrir ofan.
Skemmtilega afgirtur garður nágrannans.
Kiddi og Jófríður eiga 2 börn og 8 barnabörn og öllum finnst gaman að koma og vera í Hofsós, helst öll í litla húsinu en stundum fer fólk yfir í Sólvang þegar plássleysið verður alvarlegt.
Kiddi; Jófríður og barnaskarinn á svölunum.
Þegar fréttaritari var þarna staddur voru þarna barnabörn upp um alla veggi og Kiddi Afi og Jófríður amma syntu þeim öllum með bros á vör og með aðdáunarverðri þolinmæði, ást og umhyggju.
Kiddi var nýkominn úr sjóferð með nokkur af börnunum og Jófríður bar lítinn 3 mánaðar gamlan ömmustrák út og inn og kíkti eftir restinni af barnaskaranum á leik sínum kringum húsið.
Stoltur afi með tvö af barnabörnunum að þvo bátinn eftir sjóferð. Húsið Sólvangur í baksýn.
Kristinn Halldórsson (Kiddi Gósa) eðalafi, þessi litli sem sést í þarna á myndinni fylgir afa sínum út um allt, má ekki missa afa sinn úr augsýn eitt augnablik.
Jófríður Hauksdóttir, stolt amma með þann minnsta í fanginu. Þriggja mánaða sætan snáða.
Barnabörn, já það sést svo sannarlega að í þessu litla sæta húsi eru barnabörn eftirréttur lífsins.
Myndir og texti:
Jón Ólafur Björgvinsson
Fréttasími: 842 - 0089
Athugasemdir