Fjárhald og ekki fjárhald á Siglufirði
Fjárhald er nú loksins leift á Siglufirði eins og það hefur verið leyft frá ómunatíð í Ólafsfirði, við búum jú öll í Fjallabyggð eða hvað?
En nú skal upplýst að kindur sem hafa verið hér í firðinum eru búnar að vera hér þrátt fyrir að fjárhald hafi verið bannað hér svo lengi sem raun ber vitni og það hefur ekkert breyst þó fjárhald hafi verið leift enda er enginn með kindur á Siglufirði, allt það fé sem er hér, kemur úr Fljótum og ekki eru kindur læsar eða eiga þær grei-in að finna það á sér að fjárhald sé bannað, en nú er það leyft, sauðkindin lætur ekki rugla sig, enda veit hún hvar bezta grasið er ! enda er hún ekki læs!
Þetta er ekkert vandamál í Ólafsfirði þar er bæjargirðing sem heldur öllum kindum frá byggðinni og þar eru fjárbændur með kindur í húsum beint fyrir ofan bæinn og allt gengur vel, en komum aftur að Siglufirði þar er enginn girðing og að sjálfsögðu koma þær grei-in í skrúðgöngu um bæinn þegar allt er opið í safaríkagrasið (aðkomukindur).
Rétt skal vera rétt, það kostaði enga tugimilljóna að halda við fjárgirðingu á sínum tíma, þetta verk var unnið af starfsmönnum áhaldahús og kláruðu þeir það á 2 vikum, það skildi þó aldrei vera að þeir fjáreigendur sem kannski verða til á Siglufirði sjái um viðhald á bæjargirðingunni og sjái um smölun á Siglufirði sveitafélaginu að kostnaðarlausu, sú upphæð gæti verið um 1 milljón á ári sem sparast og kannski hærri og síðan þurfa landeigendur að leggja til gangnamenn ella borga þeir fjallskilaskatt til Fjallabyggðar en landeigendur hafa fengið girðingu til að halda aftur af sauðkindinni á kostnað skattborgarana eða hvað, smá innlegg í umræðu sem er á villigötum.
Góðar haustgöngur og gott lambakjöt.
Egill Rögnvaldsson fjáreigandi !ekki á Siglufirði!
Athugasemdir