Góð ganga

Góð ganga Gengið var til góðs á Siglufirði í blíðskaparveðri í gærkvöldi. Fjöldi fólks lagði hönd á plóg og eins og máltækið segir þá vinna margar hendur

Fréttir

Góð ganga

Hluti gönguhópsins
Hluti gönguhópsins
Gengið var til góðs á Siglufirði í blíðskaparveðri í gærkvöldi.

Fjöldi fólks lagði hönd á plóg og eins og máltækið segir þá vinna margar hendur létt verk.

Göngufólk lögðu af stað kl. 18:00 og meirihluti göngufólks var mættur aftur í Rauðakrosshúsið um klukkutíma síðar.

33 lögðu af stað í gönguna sem verður að teljast hreint frábær þátttaka og komust færri að en vildu, það voru því nokkrir um söfnunarbaukana.

Göngufólk geislaði af gleði enda búin að vinna mikið góðverk og sjálfsagt hefur það yljað mörgum bæjarbúum um hjartarætur að styðja við þetta góða og þarfa starf.



Þessir glæsilegu ungmenni stóðu sig með mikilli prýði og gengu til góðs.



Þessi flotta fjölskylda tók sig til og skellti sér saman í göngu til góðs



Það var mikið fjör í húsnæði Rauða krossins og gleðin við völd.



Göngufólk gæddi sér svo á ljúffengum veitingum þegar göngunni var lokið.




Athugasemdir

27.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst