Góđur árangur hjá Jakobi Helga í Noregi
http://www.mbl.is/ | Íţróttir | 23.12.2008 | 18:48 | Robert | Lestrar 205 | Athugasemdir ( )
Jakob Helgi Bjarnason, 13 ára skíðamaður frá Skíðafélagi Dalvíkur náði frábærum árangri á Förjuls
Cupen í Geilo í Noregi um síðustu helgi þar sem 46 skíðamenn voru skráðir til leiks í hans flokki. Jakob keppir á yngra
ári í 13-14 ára flokki og atti kappi við alla bestu skíðamenn Noregs í þessum aldursflokki. Jakob hafnaði í 3.sæti í
stórsvigi eftir að hafa verið með 2 besta tímann eftir fyrri ferð. Í svigi keyrði hann út úr brautinni og var dæmdur úr leik.
Í risasvigi varð Jakob í 2.sæti aðeins 2/100 hlutum úr sekúndu á eftir Henrik Kristofferssen sem hefur verið
yfirburðaskíðamaður í Noregi í sínum flokki síðustu árin.
Athugasemdir