Góður liðsstyrkur
sksiglo.is | Íþróttir | 31.10.2010 | 06:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 1089 | Athugasemdir ( )
Lið KS/Leifturs heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi tímabil. Þórður Birgisson skrifaði undir eins árs samning við KS/Leiftur síðastliðin föstudagin
Þórður sem var að láni frá HK s.l. keppnistímabil var valinn besti leikmaður m.fl. karla af leikmönnum liðsins á lokahófi KS/Leifturs á dögunum.
Þórður skoraði 11 mörk í Íslandsmótinu og var markahæsti leikmaður KS/Leifturs í 2. deild s.l. sumar. Milan Lazarevic samdi einnig við félagið til eins árs, Milan skoraði 10 mörk s.l. sumar í 2. deildinni fyrir KS/Leiftur.
Það er mikill fengur fyrir KS/Leiftur að fá heimamanninn Þórð Birgisson til liðs við félagið og að Milan skuli hafa framlengt vera sína hjá félaginu. Þar með hefur félagið samið við tvo markahæstu leikmenn liðsins
s.l. sumar ásamt því að framherjinn Ragnar Hauksson er kominn til baka á ný til félagsins.

Athugasemdir