Gólfið tilbúið hjá Rauðku

Gólfið tilbúið hjá Rauðku Mikið gekk á í Rauða húsinu síðastliðinn föstudagi þegar Rauðka, Bás og félagarnir úr Mynstursteypu G. Sölva mættu til leiks og

Fréttir

Gólfið tilbúið hjá Rauðku

Gólfplatan fyrir lökkun
Gólfplatan fyrir lökkun
Mikið gekk á í Rauða húsinu síðastliðinn föstudagi þegar Rauðka, Bás og félagarnir úr Mynstursteypu G. Sölva mættu til leiks og rigguðu niður gólfplötu á met tíma.


Ákveðið var að fara þá leið í Rauða húsinu að mynstursteypa gólfið. Verður það því viðhaldsfrítt og, það sem betra er, fulltilbúið eftir helgi. Gólfið, sem er 370 fermetrar að grunnfleti er hið glæsilegasta eftir stimplun, í dag var gólfið síðan lakkað og er því fulltilbúið að lokinni þornun.

Samkvæmt starfsmönnum Grétars Sölva er þetta eitt stærsta gólf sem hefur verið mynstursteypt á Íslandi. Óreglulegt mynstur og grár tónn einkennir gólfið sem þeir félagar steyptu á einungis 5 klukkustundum án teljandi vandræða. Steypuvinnu var lokið klukkan 14:00 en mynstrun síðan ekki fyrr en klukkan 22.


Básarar mættir með dæluna


Oddi einangrar undir steypuna


Siggi við suðuna


Hörður framkvæmdastjóri heldur aga á liðinu


G. sölva hefst handa


Dregið yfir gólfhitann hans Grétars


Klukkan orðin 12:00 og aðeins eftir að steypa gólf kaffihússins.


Slétt og fínt, gólfplatan komin niður fyrir klukkan 14:00


Mynstrið vandlega stimplað


10 fermetrar búnir, ekki nema rýflega 300 eftir.

Athugasemdir

27.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst