Helgi Björns og októberfest á föstudaginn
sksiglo.is | Viðburðir | 03.10.2014 | 18:00 | María Petra Björnsdóttir | Lestrar 356 | Athugasemdir ( )
Föstudaginn 3. október slær Hannes Boy upp veislu og haldið verður októberfest. Í boði verður hlaðborð með
grísaskönkum, bratwurst pylsum, kjúkling, súrkáli, kartöflusalati, snitseli og ýmsu fleiru. Verð á mann er 3.990 kr og staðurinn opnar
klukkan 18:00.
Sama kvöld heldur Helgi Björns tónleika á Kaffi Rauðku í tilefni 30 ára söngafmælis.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og húsið opnar klukkan 20:30.
Miðaverð á tónleikana er 2.990 kr
og aldurstakmark er 18 ár.
Athugasemdir