Hetjur dagsins
sksiglo.is | Almennt | 23.12.2014 | 12:09 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 1015 | Athugasemdir ( )
Það eru ekki allir til í að láta vaða þegar kemur að skötunni og eru það sannkallaðar hetjur sem hafa í sig fyrsta bitann.
Eftir þann fyrsta renna aðrir að sjálfsögðu ljúft niður enda sérlega ljúffengur fiskur þar á ferð. Flestir sem komnir eru á bragðið sporðrenna honum auðvita enda orðinn stór hluti af jólahefðinni.
Vinur okkar, svisslendingurinn Beda Mörgeli, tók sinn fyrsta, annan og þriðja bita en lét þar við sitja brosandi af skrítinni hefðinni.
Athugasemdir