Hjartanæm gjöf frá Rauða krossinum

Hjartanæm gjöf frá Rauða krossinum Í dag fékk Íþróttamiðstöð Siglufjarðar hjartastuðtæki að gjöf frá Siglufjarðardeild Rauðakrossins.Deildin vill með

Fréttir

Hjartanæm gjöf frá Rauða krossinum

Mark Duffield tekur við tækinu úr hendi Ólafs Sigurðssonar
Mark Duffield tekur við tækinu úr hendi Ólafs Sigurðssonar
Í dag fékk Íþróttamiðstöð Siglufjarðar hjartastuðtæki að gjöf frá Siglufjarðardeild Rauðakrossins.
Deildin vill með þessu móti stuðla að bættu öryggi þeirra sem stunda líkamsrækt.

Hjartastuðtæki  geta skipt sköpum þegar bregðast þarf við á vettvangi áður en sjúkrabíll kemur á staðinn. Tækið er mjög einfalt og auðvelt í notkun  og getur hver sá sem hlotið hefur lágmarks kennslu notað hjartastuðtæki til bjargar mannslífi.

Á næstu dögum mun starfsfólkið fá þjálfun í notkun tækisins og einnig verður farið í skyndihjálp.

Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar hvetur Siglfirðinga til þess að koma og njóta þess að hreyfa sig í sundi og í líkamsræktinni og slaka á í pottinum góða. Því góð hreyfing er alltaf til bóta fyrir sál og líkama.
Mark Duffield forstöðumaður Íþróttamiðstöðvarinnar, vill fyrir hönd Íþrótta-miðstöðvarinnar koma til skila innilegu þakklæti til stjórnar Rauðkrossdeildarinnar á Siglufirði, fyrir þessa höfðinglegu gjöf.


Mark Duffíeld og Ólafur Sigurðsson

Mark Duffield þakkar fyrir höfðinglega gjöf.

Mark forstöðumaður og Ásta starfsmaður ásamt stjórn Rauðkrossdeildarinnar; Margrét, Mundína, Guðrún, Steinar og Ólafur
..

Athugasemdir

28.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst