Hólshyrnuganga
sksiglo.is | Viðburðir | 02.08.2014 | 11:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 595 | Athugasemdir ( )
Hólshyrna. Þrír skór.
2. ágúst, kl. 11 frá syðri enda flugvallarins.
Verð: 1.500. 4-5 klst. Mesta hæð 687 m.
Gengið frá Saurbæjarási og upp framan á eggjum Hólshyrnu, Hólshyrnuröðul og upp á Hólshyrnuna.
Eftir Hólsfjalli og niður í Skútudal. Áhugaverð og sjaldfarin útsýnisleið sem er nokkuð brött á köflum.
Ferðafélag Siglufjarðar stendur fyrir skipulögðum gönguferðum í sumar. Fyrsta ferðin verður miðvikudaginn 28. maí en þá
verður boðið upp á fuglaskoðunarferð í Héðinsfirði. Síðan verður sólstöðuganga 20. júní. Gengið
á Hvanneyrarhyrnu 5. júlí. Út á Siglunes 19. júlí. Listaganga um Siglufjörð verður 30. júlí og síðan gengið
á Hólshyrnuna 2. ágúst. Gönguferðir sumarsins enda svo um suðureggjar Siglufjarðarfjalla þann 9. ágúst.
Athugasemdir