Hrefnumótið í boccia
Hrefnumótið í boccia var haldið síðasta laugardag í íþróttahúsinu en mótið er árlegt og var nú haldið í sjötta sinn.
Þar eigast við afkomendur Hrefnu Hermannsdóttur, en Hrefna var margfaldur bocciameistari, og félagar hennar í íþróttafélaginu Snerpu.
Á eftir var boðið upp á súpu og konfekt í Skálarhlíð ogþátttakendur fengu verðlaunapening. Sigurjón og Heiðrún sigruðu og hlutu að launum farandbikar.
Hér er um að ræða skemmtilega viðureign þar sem allir fá að njóta sín, ungir sem aldnir.
Hrefnugengið
Sigurvegarar
Fleiri myndir má sjá hér :http://thomasfle.smugmug.com/Events/Hrefnum%C3%B3t-2015/
Athugasemdir