Hrímnir Hár- og Skeggstofa lokuð í dag
Vegna ótrúlega hagstæðrar veðurspár og hugsanlegs beikonhamborgaratilboðs einhversstaðar á Akureyri mun Hrímnir Hár- og Skeggstofa vera lokuð í dag, mánudaginn 14. apríl.
Og akkúrat vegna þessa lokunardags verður opið í staðinn á þriðjudag og miðvikudag fyrir páska frá klukkan 10:00 til 17:00.
(Það er reyndar möguleiki á því að það opni ekki fyrr en 10:15 báða dagana vegna þess að kvennmennirnir á heimili
starfsmanns Hrímnis Hár og Skegg eru oft á tíðum mjög lengi að koma sér út úr húsi á morgnanna. )
Og svo til þeirra sem komast ekki, vilja ekki eða bara hreinlega nenna ekki í klippingu á Hrímni fyrir páska eða bara yfir höfuð segjum við gleðilega páska.
Já og eitt enn það verður lokað næstkomandi fim,fös,lau,sun,mán. Stofan ætti eiginlega að heita Loki miðað við allar þessar lokanir.
Athugasemdir