Hugrekki Dorritar
Sama gerðist á leiðinni til baka, Dorrit gekk næst Austurvelli föstum skrefum og brá sér hvergi. Fjær mátti sjá hina minni spámenn hlífa sér sem best þeir máttu. Meðal annars má sjá í lítinn sköllóttann kall skjótast Tjarnarmegin í skjóli Forsetafrúarinnar á forsíðumynd Baugstíðinda í dag. Hugsanlega áttu mótmælendur heldur ekkert sérstakt erindi við manninn þar sem hrunið var ekki honum að kenna og maðurinn norrænn velferðarsinni.
Ég var stoltur af Forsetafrúnni minni, henni er greinilega ekki fisjað saman.
Og Apropos
mótmælendur. Hversvegna er ekki rifjað upp að í Lögrelusamþykkt einhvern
tímann var lagt bann við því að ganga grímuklæddur á almannafæri. Mér
finnst ótækt að líða huglausum svartklæddum lambhúshettumönnum að hlaupa
um í röðum kjarkaðra mótmælenda. Þessir mögulegu glæpamenn eru til alls
vísir í skjóli grímubúningsins og svona Mökkurkálfar koma óorði á
heiðarlegt fólk sem er mætt til að mótmæla í krafti eigin
sannfæringar.
Athugasemdir