Hver fann upp skíðin?

Hver fann upp skíðin? Elstu skíðin sem fundist hafa eru um 4.500 ára gömul. Aðeins annað skíðið fannst reyndar, í Svíþjóð, en það er stutt og breitt,

Fréttir

Hver fann upp skíðin?

Skíðakappi
Skíðakappi
Elstu skíðin sem fundist hafa eru um 4.500 ára gömul. Aðeins annað skíðið fannst reyndar, í Svíþjóð, en það er stutt og breitt, ólíkt löngu og mjóu skíðunum sem tíðkast í dag.
 Mörg forn skíði hafa fundist á Norðurlöndum, mismunandi að lögun, en reglan hefur verið sú að þau mjókki og lengist eftir því sem norðar dregur.

Gera má ráð fyrir að skíði séu mun eldri en elsti fundurinn gefur til kynna. Talið er að þau hafi orðið til fyrir um 8.000 árum, við lok síðustu ísaldar, líklega í Asíu og þaðan borist vestur til Skandinavíu. Á svæðum kringum norður-heimskautsbaug hafa fundist fornar hella- og steinristur sem sýna menn á skíðum, sú frægasta líklega frá Rodoy í Noregi en hún er talin jafngömul elstu skíðunum, um 4.500 ára gömul. Rodoy-myndin sýnir mann á skíðum með áhald sem kann að hafa verið notað við veiðar.
Skíði gegndu lengst af því einfalda hlutverki að auðvelda mönnum ferðir í snjó, við flutninga, veiðar og annað því um líkt. Fræg dæmi eru um að skíði hafi reynst skipta sköpum í hernaði á Norðurlöndum, eins og Birkebeinerennet í Noregi og Vasaloppet í Svíþjóð eru til minningar um.
Skíðaíþróttin verður svo eiginlega til á 18. öld á Þelamörk í Noregi, og þangað má rekja upphaf bæði norrænna greina og alpagreina. Þelmerkingurinn Sondre Norheim er talinn hafa bylt skíðaiðkun árið 1868 með því að setja band yfir hælinn sem festist við táfestinguna. Þetta gerði mönnum kleift að beygja og stökkva á skíðunum án þess að þau losnuðu úr festingunni sem þangað til hafði aðeins náð um tærnar. Þessi gerð festingar hentaði einstaklega vel göngugreinum og stökki, norrænu greinunum, og á fyrstu Vetrarólympíuleikunum 1924 var aðeins keppt í norrænum greinum. Þelamerkurfestingarnar reyndust ekki eins góðar í bröttu fjalllendi Mið-Evrópu, Ölpunum, og til að ná betri stjórn á skíðunum voru þau líka fest við hælinn. Þannig urðu alpagreinar til og keppt var í þeim fyrst á Vetrarólympíuleikunum 1936.

Norðmaðurinn Nikulás Buch er fyrsti skíðakennarinn sem vitað er um á Íslandi, en hann kenndi fólki að skíða og búa til skíði á Húsavík á 18. öld. Síðan breiddist skíðaíþróttin hægt og rólega um landið og segja má að í dag séu starfrækt skíðafélög hér á landi þar sem því verður mögulega við komið.

Athugasemdir

19.apríl 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst