Hyggjast heimsækja fyrirtæki í Fjallabyggð
Atvinnumálanefnd hyggst heimsækja fyrirtæki í Fjallabyggð á árinu í þeim tilgangi að efla tengslin milli sveitafélagsins og atvinnurekenda á svæðinu
Í fundarbókun hjá nefndinni á heimasíðu Fjallabyggðar kemur fram að "Atvinnumálanefnd hefur það að stefnu sinni að heimsækja fyrirtæki í sveitarfélaginu. Nefndin felur starfsmanni nefndarinnar að taka saman lista yfir fyrirtæki eða hópa atvinnurekenda í sveitarfélaginu sem nefndin mun heimsækja á árinu 2015. Markmið með heimsóknunum er að efla tengsl sveitarfélagsins og atvinnurekenda á svæðinu".
Athugasemdir